Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009
29.1.2009 | 14:46
Bíóferð bíður betri tíma - Æfingaleikur við Fylki á laugardaginn
Laugardaginn 31. janúar
Skv. mánaðarplaninu átti að vera bíóferð um helgina en við ákváðum að geyma hana aðeins þar sem við fengum æfingaleik við Fylki núna á laugardaginn. Eldra árið mætir kl. 12:45 á Gervigrasið okkar og spilar frá kl. 13:00-14:00 Yngra árið mætir kl. 13:45 á Gervigrasið okkar og spilar frá kl. 14:00 15:00 Þeir sem eru á yngra árinu og æfa með eldra árinu eiga að mæta kl. 12:45 og spila með báðum árunum.
Allir eiga að mæta í sínum búningum ef þið eigið og skráning fer fram á blogginu hér að neðan, í athugasemdardálknum.
Kv. Eysteinn og TryggviBloggar | Breytt s.d. kl. 14:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
29.1.2009 | 14:44
Fjáröflun 6. flokks karla - Nánari upplýsingar
Tilgangur er að safna fyrir kostnaði sem verður vegna móta í sumar og eru peningar sérmerktir hverjum strák. Fyrir hverja einingu af klósettpappír safnast 1600 kr, eldhúsrúllum 1400 kr og tannhirðusetti 1000 kr.
Pantanir:Meðfylgjandi er pantanablað sem fylla skal út og afhenda á æfingu ekki seinna en 4. febrúar
Á þessu verður að koma fram magn af hverri vöru þannig að skýrt sé hvað iðkandi ætlar að fá mikið af klósettpappír, eldhúsrúllum og tannhirðusettum.
Pantanablað er að finna á bloggsíðu flokksins: http://trottur6flokkur.blog.is/blog/trottur6flokkur/
(sjá hér að neðan)Greiðsla
Greiða þarf fyrir vörurnar ekki síðar en 6. febrúar inn á fjáröflunarreikning flokksins
Reikningur: 313-26-080468. Kennitala 080468-4669.
Afhending varannaReiknað er með að vara verði afhent þann 11. febrúar. Reiknað er með að það verði milli 17 og 19:00 en nánari upplýsingar um þetta verða sendar út þegar nær dregur
Tengiliðir vegna frekari upplýsinga
Friðrik sími 660-5174
Helgi helgibj68@gmail.com
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2009 | 14:42
Rútuferðir á æfingar - 6. flokkur getur nýtt sér það
Þetta er gert í ljósi þess við höfum skynjað að erfiðlega hefur gengið fyrir foreldra að koma yngstu börnum sínum á æfingar sem hefjast kl. 15:00 og 16:00 á daginn.
Vonumst við til þess að þessi þjónusta mælist vel fyrir hjá foreldrum og forráðamönnum og að þeir nýti sér þessa þjónustu.Börnunum verður ekki ekið tilbaka í frístundaheimilin að æfingu lokinni og því þurfa foreldrar að sækja þau í Laugardalshöllina eða á Gervigrasið í Laugardal að æfingu lokinni.
Fyrst og fremst er þessi þjónusta í boði fyrir 7. Flokk karla í knattspyrnu sem eru á æfingu kl. 15:00 og 16:00 á daginn en iðkendum sem eru í 3-4. bekk er að sjálfsögðu velkomið að hoppa með í rútuna til að ná sínum æfingum ef pláss er í rútunni.-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Rútuferðirnar verða eftirfarandi:
Mánudagar
Frá Vogaseli (kl. 14:30) Frá Glaðheimum/Þróttheimum (kl. 14:40) Frá Laugarseli (kl. 14:50) Stoppað við Gervigrasið og Laugardalshöll kl. 15:00
Frá Vogaseli (kl. 15:30) Frá Glaðheimum/Þróttheimum (kl. 15:40) Frá Laugarseli (kl. 15:50) Stoppað við Laugardalshöll kl. 16:00
Fimmtudagar
Frá Vogaseli (kl. 14:30) Frá Glaðheimum/Þróttheimum (kl. 14:40) Frá Laugarseli (kl. 14:50) Stoppað við Gervigrasið kl. 15:00
Frá Vogaseli (kl. 15:30) Frá Glaðheimum/Þróttheimum (kl. 15:40) Frá Laugarseli (kl. 15:50) Stoppað við Gervigrasið kl. 16:00
Föstudagar
Frá Vogaseli (kl. 14:30) Frá Glaðheimum/Þróttheimum (kl. 14:40) Frá Laugarseli (kl. 14:50) Stoppað við Gervigrasið kl. 15:00
Allar nánari upplýsingar gefur íþróttafulltrúi Þróttar á netfangið eysteinn@trottur.is / 580-5903
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2009 | 14:40
Fjáraflanir
Sæl!
Hér kemur tilkynning um fjáraflanir í 6. flokk karla frá flokksráðinu.
Sjá viðhengi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.1.2009 | 13:18
Æfingaleikur í Kórnum í fyrramálið
Sæl verið þið!
Afsakið hvað þetta kemur seint hér á bloggið.
En það er semsagt æfingaleikur við HK í Kórnum í fyrramálið, laugardaginn 17. janúar (sama stað og síðast þegar við spiluðum við þá).
Mæting kl. 08:30 og reiknum við með því að vera búinn um kl. 10:20.
Kostar ekkert, bara mæta með góða skapið og við skiptum í lið á staðnum.
Mæta í sínum treyjum ef þið eigið.
Bestu kveðjur
Eysteinn og Tryggvi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.1.2009 | 10:23
Foreldrafundur - fimmtudaginn 15. jan frá kl. 18:00-19:00
Sæl!
Boðað er til foreldrafundar í 6. flokki karla fimmtudaginn 15. jan kl. 18:00-19:00 í Þróttarheimilinu. (Hægt að taka börnin með og horfa á Vídeó í vídeóherberginu).
Dagskráin:
Hvað er framundan
Mót sumarsins
Fjáraflanir
Önnur mál
kv. Foreldraráð 6. flokks karlaBloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.1.2009 | 10:21
Mánaðarplan - Janúar 2009
Sjá viðhengi.
(Er unnið í forriti sem kallast publisher- hægt að nálgast á netinu).
kv. Eysteinn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.1.2009 | 09:54
Flöskusöfnun á laugardaginn!
Laugardaginn 10. jan verður Þróttur með flöskusöfnun frá 11-14. Tekin verða póstnúmer 104 og 105 að stærstum hluta og hverfum skipt á milli flokka þannig að hver sé með hæfilega stórt hverfi. Afrakstur rennur til þeirra sem taka þátt þ.e. verður eyrnamerkt þátttakanda. Miðað er við að 7, 6 og 5 flokkur taki þátt og væri gott að vita hversu margir úr 6 flokki karla munu taka þátt. Æskilegt er að einhverjir foreldrar séu með strákunum til að auðvelda þetta. Vinsamlega sendið á helgibj68@gmail.com ef þið takið þátt og væri gott ef þið gætuð sent svar fyrir hádegi á morgun.
kv. Eysteinn og flokksráð 6. flokks
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)