Færsluflokkur: Bloggar
15.4.2008 | 23:28
Njarðvíkurmót á sunnudaginn!
Njarðvíkurmótið sem vera átti í febrúar verður haldið á sunnudaginn næsta (20. apríl)
Allir þurfa að vera mættir í Reykjaneshöll í síðasta lagi kl. 08:20
Þróttarliðin spila frá kl.8:45-14:00 (Aðeins öðruvísi en sagt var frá í apríldagskránni)
Á æfingunni á morgun miðvikudag verður þátttökutilkynningum dreift og eiga allir að skila þeim miðum á fimmtudagsæfingunni.
Þá er líka hægt að skrá sig á blogginu (undir athugasemdir).
Hver og einn reynir að redda sér fari en ef einhver eða einhverjir eru í vandræðum með að fá far þá hafið þið samband.
Þeir sem eiga Þróttartreyju eiga að mæta í henni.
Liðin verða síðan sett á bloggsíðuna á föstudaginn.
Þáttökugjald er kr. 1200 sem greiðist á staðnum. (allir verða að vera með akkurat)
Nánara leikjaplan má finna með því að smella á skjalið hér að neðan.
Ef ykkur vantar einhverjar upplýsingar - endilega hafið samband
kv. Eysteinn 861-9811 eysteinn@trottur.is , Kiddi 661-4774 eða Svenni 847-9143.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
15.4.2008 | 23:18
Æfingaleikur við ÍBV á Laugardaginn!
Æfingaleikur verður á Gervigrasinu okkar næsta laugardag kl. 13:30-15:30.
Mæting kl. 13:00 stundvíslega og eiga allir að mæta á sama tíma.
Allir að mæta í sinni keppnistreyju ef þeir eiga.
Mikilvægt að láta vita á blogginu hvort þið komist eða ekki.
kv. Þjálfarar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
15.4.2008 | 23:14
Mót sumarið 2008!
Núna er loksins hægt að fara að skipuleggja sumarið
Mót 6. flokks sem farið verður á sumarið 2008 eru eftirfarandi:
Þróttarmót (Áður Bónusmót) 7.- 8. júní - Bæði eldri og yngri
Smábæjarleikarnir á Blönduósi 20. - 22. júní - Yngra árið
Shellmótið í Vestmannaeyjum 24. - 28. júní - eldra árið
Pollamót KSÍ - Spilað í miðri viku í júlí - ekki komin tímasetning - Bæði eldri og yngri
Króksmót á Sauðárkróki - 8. - 10. ágúst - Bæði eldri og yngri
kv. Þjálfarar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.4.2008 | 23:15
Fjáröflun - Rækjusala
Eins og þið vitið erum við að fara að stað með fjáröflun fyrir strákana til að gefa þeim kost á því að eiga uppí ferða og mótskostnað fyrir sumarið.
Að þessu sinni erum við með til sölu:
Frábærar úthafsrækjur ! Þetta eru stórar og glæsilegar verstfirskar úthafsrækjur í 2 kílóa pokum af bestu gerð.
Verð: 2600 kr.
Það er alltaf nauðsynlegt að eiga góðar rækjur í frystinum J
Fyrir hverja pakkningu (poka) sem þeir selja fá þeir 1000 kr lagðar inná reikning merkt þeim sem þeir geta svo notað uppí kostnað.Pantanir berist til Þórðar helst á tölvupósti brosi@murogmal.is
en einnig í síma 6607633 í síðasta lagi 25. apríl og verða þær svo afhentar á æfingu miðvikudaginn 30 apríl.
Greiða má inná reikn 0117-26-717 kt:220468-2249 senda kvittun á marcus@myllan.is og muna að merkja fyrir hvern sé greitt, einnig hægt að greiða við afhendingu.(ekki kort)
Með von um góða sölu
Foreldraráð 6 fl kk Þróttar
P.s.Hér að neðan er hægt að nálagst eyðublað til að t.d. að fara með á vinnustaði og þar geta vinnufélagarnir skráð sig fyrir pöntun á rækjum
Bloggar | Breytt 15.4.2008 kl. 19:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.4.2008 | 14:55
Dagskráin fyrir Apríl
Sæl!
Dagskráin fyrir apríl - kemur seint en kemur þó :-)
kv. Þjálfarar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.4.2008 | 13:56
Shellmót (eldra árið) - staðfestingargjald
Góðan daginn!
Nú þarf að ganga frá staðfestingargjaldi fyrir þá iðkendur sem ætla á Shellmótið í Vestmannaeyjum í sumar.
Greiða þarf kr. 5.000.- pr. þátttakanda - leggist inn á eftirfarandi reikning:
0117-26-717
kt:220468-2249
Munið að senda kvittun á marcus@myllan.is þar sem fram kemur nafn drengs.
Þeir sem eiga innistæðu á safnreikningi flokksins geta haft samband við Marcus og óskað eftir að greiða staðfestingargjaldið þaðan, sjá e-mail / s 820-2320.
Um næstu mánaðarmót þarf að greiða fyrir regngalla og flíspeysu (inn á sama reikning). Verður auglýst nánar síðar.
Með bestu kveðju,
Flokksráð 6. flokks kk
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.3.2008 | 16:33
Spila- og pizzukvöld
Á morgun, fimmtudaginn 27. mars verður spila og pizzukvöld fyrir 6. flokk drengja og stúlkna.
Foreldrar og systkini eru einnig boðin velkomin.
Þetta byrjar allt saman kl. 18:00 og stendur til kl. 20:00.
Það koma til okkar konur frá spilabúðinni á Langholtsvegi og kenna okkur á hin ýmsu spil.
Nokkrir aðrir flokkar hafa tekið þátt í þessu og gekk það mjög vel.
Við ætlum að panta pizzu og gos og strákarnir þurfa því að hafa með sér 500 krónur.
Þá er bara æfing á sama tíma á morgun frá kl. 15:00-16:00 eldri og kl. 16:00-17:00 yngri, þannig að þetta verður langur fimmtudagur.
Sjáumst
Kv. Þjálfarar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.3.2008 | 16:32
Fannar Máni fluttur til Svíþjóðar!
Í dag mætti á sína síðustu æfingu (í bili a.m.k) Fannar Máni Fjalarsson sem er leikmaður á yngra árinu í 6. flokk.
Hann fer í nótt ásamt fjölskyldu sinni til Svíþjóðar en þangað er fjölskyldan hans að flytja.
Að sjálfsögðu kíkir hann á okkur í heimsókn í sumarfríinu og spilar vonandi með okkur einhverja leiki
Um áramótin misstum við einnig annan kappa af yngra árinu, hann Benjamín Elísson sem flutti til Reading á Englandi ásamt fjölskyldunni sinni.
Við óskum þessum flottu strákum velfarnaðar í nýjum löndum og vonumst að sjálfsögðu til að sjá þá í Þróttarabúningnum aftur í náinni framtíð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.3.2008 | 14:01
Páskafríið búið - Æfing í dag
Fyrsta æfingin eftir páskafrí fer fram í dag.
Æfingin verður frekar óhefðbundin en tvær ungar dömur frá Rauða Krossinum koma í heimsókn og halda fyrirlestur milli kl 15:00-16:00.
Allir að mæta
kv. Þjálfarar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.3.2008 | 22:42
Páskafrí
Núna er komið páskafrí í 6. flokk karla.
Við óskum ykkur gleðilegra páskahátíðar og sjáumst svo aftur á æfingu í næstu viku, miðvikudaginn 26. mars.
kv. Þjálfarar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Af mbl.is
Erlent
- Nú verðum við líka að kaupa flugmóðurskip!
- Játaði morðið á Charlie Kirk fyrir föður sínum
- Byssukúlan situr enn í heila stúlkunnar
- Morðingi Kirks: Hey, fasisti! Gríptu!
- Solberg afsegir sig frá formennsku
- NATO sendir liðsafla í austurhluta Evrópu
- Líkin fundust í ferðatöskum fjórum árum síðar
- Heita stórfé fyrir veggmyndir af Irínu